Austurlandahraðlestin gætir fyllsta jafnréttis við ákvörðun launa og annarra starfskjara. Allt starfsfólk skal fá greidd jöfn laun og njóta sömu starfskjara fyrir jafnverðmæt störf. Skilgreining Austurlandahraðlestin á launajafnrétti styðst við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020.
Í 6. gr. Jafnréttislaga er eftirfarandi skilgreining:
Konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá skulu greidd jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir fólk óháð kyni. Skulu þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun ekki fela í sér kynjamismunun.
Starfsfólki skal ávallt heimilt að skýra frá launakjörum sínum ef það kýs að gera svo.
Til að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur Austurlandahraðlestin sig til þess að innleiða, skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við skilyrði jafnlaunastaðfestingar skv. lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna nr. 150/2020. Austurlandahraðlestin hefur innleitt verklag og skilgreint launaviðmið til að tryggja að starfsfólk fái greitt fyrir störf sín út frá verðmæti starfa óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum sjónarmiðum.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á jafnlaunakerfi fyrirtækisins og að það standist lög varðandi jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Til þess að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur Austurlandahraðlestin sig til að:
- Innleiða, skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna
- Framkvæma launagreiningu að minnsta kosti árlega þar sem jafnverðmæt störf eru borin saman til að tryggja að kynbundinn launamunur sé ekki til staðar. Helstu niðurstöður skulu kynntar fyrir starfsfólki
- Bregðast við óútskýrðum launamun með stöðugu eftirliti og umbótum þar sem þess er þörf
- Kynna jafnlaunastefnu fyrir starfsfólki og hafa hana aðgengilega almenningi
Samþykkt af framkvæmdastjóra
Chandrika Gunnarsson
Reykjavík 20.06.2022